Ég kom í heiminn miðvikudaginn 28. mars 2007. Klukkan var 18.17 þegar ég fæddist og var ég með svart mikið hár og stærstu og forvitnustu augun! Ég var 19,3 merkur og 55 cm. Stór og stæðileg stelpa tilbúin fyrir allt. Við fæðinguna viðbeinsbrotnaði ég en það greri fljótt sem betur fer en það lýsir látunum við komu mína. Alveg ógleymanlegt:)
Ég er fyrsta barn foreldra minna sem eru Arna Þórdís Árnadóttir fædd 1982 og Sigurþór Hjalti Gústafsson fæddur 1979. Þau giftu sig 15. júlí 2006 og komust að því að ég væri til viku seinna. Ekkert smá fullkomið. Pabbi er menntaður grunnskólakennari og kennir í heilsuleikskólanum Kór í Kópavogi og mamma er í Háskóla Ísla?nds í mastersnámi í Alþjóðasamskiptum. Þeim gengur báðum rosalega vel.

Við búum í Bakkahverfinu í Breiðholti og líður mjög vel hér. Ég byrjaði á nýjum leikskóla í haust, en áður hafði ég verið í leikskóla á Bifröst, en nýi leikskólinn heitir Bakkaborg og er ég alveg rosalega ánægð þar. Það er alveg frábær leikskóli, með frábæru starfsfólki og yndislegum krökkum! Ég læri eitthvað nýtt á hverjum degi og mamma og pabbi hafa ekki undan að vera stolt af mér.
Mamma og pabbi hafa ákveðið að læsa fyrir myndasíðuna mína en lykilorðið er nafnið á kisunni sem mamma og pabbi áttu áður en ég fæddist. Ekki með séríslenskum stöfum. Ekki vera feimin við að senda póst ef þið viljið fá aðgang:)